Dásamlegur hnetusmjörs hafragrautur með banana - frábær til að grípa með á annasömum dögum.
- Berglind Ósk Magnúsdóttir
- Nov 9, 2023
- 1 min read
Updated: Nov 29, 2023

Hnetusmjör og bananar er algjörlega frábær blanda! Þessi morgunverður er gerður kvöldið áður og því hentugur fyrir þá sem eru alltaf að drífa sig á morgnana.
Þessi dásemd er fyrir einn:
1 bolli mjólk eða jurtamjólk að eigin vali
1/2 bolli haframjöl
1 tsk. hnetusmjör (eða möndlusmjör), best að hafa 100% hnetur - ekkert annað
1/2 banani, skorinn í bita
1 msk. chia fræ eða 1 msk. hörfræ (bæði fyrir þá sem vilja meiri orku)
Öllu blandað saman í krukku eða box með loki. Geymist í ísskáp yfir nótt- tilbúið til að grípa með næsta morgun.
Comments